06september
HEY er komin með Nýja síðu !!!!!
www.janajons.bloggar.is
Allir að skoða
18maí
Já þá er maður loksins komin heim..

Ég kom eikkað um hálf 9 í gærkveldi og fór þá að taka aðeins upp úr töskunum og svona. En ég nennti ekki að gera það mikið þannig að alllur dagurinn í dag er búinn að fara í þetta

Tók smá hring með Tinnu áðan og svo eldaði ég mér því að þau voru að éta
saltkjötbollur ojj

EN já svo er víst Eurovisiion á morgun, og það er planið að fá sér nokkra öllara og horfa á dæmið en svo var hann Einar Höllu að segja mér að það væri ball með honum á Þórshöfn á föstudagin!! Usss já maður verður þá að taka djammið á þetta

EN ég nenni ekki að blogga meira, er í svo seinvirkri tölvu að hún er að skíta á sig við að skrifa þetta niður ..hehe
Og kvittiði anskotinn hafi það fólk!!!!!!!!!
15maí
Já það ríkir mikil sorg á laugum núna. Við vorum í afmælisveislu hjá Bjössa og Soffíu í gær og það var mjög gaman sko, ég var að keyra og þetta var bara fínt geðveikt góður matur og allt. Svo þegar við erum að leggja af stað heim þá er fattað að einn strákur úr hópnum er týndur og hann er ekki fundinn enn

Ég vona bara að það sé allt í lagi með hann....
En já allavegna svo eru allir að fara heim nema ég og mig langar HEIM

Já það eru mikil tár og grátur þegar maður er að kveðja alla og Eyþór og Beggi eru að fara á eftir og shiiit þá verður sko fellt tár

En er að fara í þýskupróf á morgun, og ég er ekki að fara að ná því. Þarf ábyggilega að fara í þennan skemmtilega áfanga aftur !!!
Ætla að kveðja í bili er að fara að horfa á Contalginfíklana á Kompás!! Foookk
13maí
Hann sigldi út um höfin blá í sautján ár
og sjómennsku kunni hann upp á hár.
Hann saknaði alla tíð stúlkunnar
og mynd hennar stöðugt í hjarta hann bar.
Í höfnum var hann hrókur mikils fagnaðar
hann heillaði þar allar stúlkurnar.
En aldrei hann meyjarnar augum leit
það átti ekki við hann að rjúfa sín heit
Ó, María, mig langar heim,
ó, María, mig langar heim,
því heima vil ég helst vera
ó, María hjá þér.
Svo kom að því hann vildi halda heim á leið,
til hennar, sem sat þar og beið og beið.
Hann hætti til sjós tók sinn hatt og staf
og heimleiðis sigldi um ólgandi haf.
Ó, María, mig langar heim,
ó, María, mig langar heim,
því heima vil ég helst vera
ó, María hjá þér.
En fleyið bar hann aldrei heim að fjarðarströnd.
Hann ferðast ei meira um ókunn lönd.
En María bíður og bíður enn,
hún bíður og vonar hann komi nú senn
Þetta lag er tileinkað honum pabba mínum, duglegasta manni á jarðríki
og ég vil líka taka það fram að þetta lag er ekki sungið á gamla mátann heldur eins og Greta Mjöll söng það í söng.keppni framhaldskólanna
Hann er þessi fjallmyndalegi maður í hvítu skyrtunni, sem er alveg eins og ég

12maí
Já það er gaman af þessu

hehe en var aðeins að breyta um útlit hérna á síðunni. En góðar fréttir, maður er búinn að fá vinnu í sumar, fer að vinna í Verslunninnnnni URÐ eða A.k.A Gunnubúð, og svo er ég íka búin að sækja um vinnu í sundlauginni, við þrif og eikkað

YEAH...fékk enga vinnu á AK þannig að maður verður bara að gera gott úr þessu er það ekki?
EN FOKK, hvað er í gangi, það er byrjað að snjóa!!!!!

Náttúrulega típiskt Ísland, Gott veður eina mínútuna og svo komin brjáluð stórhríð eftit smástund...

Já þetta er sjúkt þetta veður!! En ég var að velta því fyrir mér, hvort að þa bloggi enginn eða?? Ég fer inn á svona 20 síður á hverjum degi og það er einungis svona 2-3 síður þarna sem blogga á hverjum degi. Hinar blogga svona 1sinni í viku eða eikkað. En ég er bara ennþá veik, er búin að liggja í rúminu í 2 daga og ég held því fram að ég sé með lömunarveiki eða eikkað, ég er bara alveg stíf í hálsinum og vöðvabólgan er að drepa mann


En bið að heilsa ykkur í bili
10maí
Já maður þurfti náttlega að veikjast svona aðeins fyrir prófin, akkurat þegar mikilvægustu dagarnir eru í skólanum þá þarf ég að vera með 38,5 stiga hita og hósta og hálsbólgu
En maður verður bara að reyna að nýta þennan dag einhvernveginn, svaf eiginlega ekkert í nótt, Það er búið að vera svo mikið að gera á daginn að maður hefur engann tíma til að hugsa, og ég er þannig manneskja að ég þarf nú að hugsa um mín mál allavega 2 tíma á sólarhring ( og þá er ég að tala um persónuleg mál, ekki svona venjuleg mál eins og hvort maður eigi að nota létt & laggott á brauðið sitt eða smjörva)!!! En já er semsagt búin að sofa voðalega lítið seinustu 3 nætur
Var að klára 12 bls lokaritgerð í sögu um fatatísku á 20. öldinni í gær
En hehe það er hérna ein mjög skemmtileg saga að segja frá sem gerðist fyrir mig og TinnuStef í gær. Við vorum upp á 'fjallinu' ekki heimavistinni og vorum í tíma hjá Birnu (don't ask why) og allavega við erum í svo geðveikt góðu formi að við vorum bara að kafna þegar við vorum komnar upp hálft fjallið, þannig að við stungum bara af og fórum niður. Nema hvað, þeir sem vita það ekki þá er Tinna með MESTU bíflugnahræðslu i heimi og þegar við vorum að fara niður þetta bratta fjall, þá lít ég niður fyrir mig og sé RISA flykkis bíflugu í grasinu og ég labba bara yfir hana, en Tinna stekkur 3 spor upp fjallið aftur og ég nátttlega vældi úr hlátri, en Svo sagði Tinna mér að traðka á henni en nei, ég ákvað að kasta stein í hana, og hvað haldiði að helvítis flugan geri, hún RÆÐST á mig og ég tók einhver voðaleg stökk þarna og Tinna var næstum búin að spænu upp hálft fjallið hún hljóp svo hratt upp um það
En já og svo segi ég Tinnu að koma aftur flugudjöfullin sé farinn, en akkurat þegar Tinna er komin til mín þá stekkur flugan út úr fylgsni sínu og ætlar að ráðast á okkur báðar, en ég og Tinna hlaupum bara eins og hratt og við getum niður þe tta bratta fjall og erum næstum búnar að detta í lækinn við hliðina á okkur. En vitið menn okkur tókst að hlaupa frá þessari hermannaflugu sem ætlaði ´ser að drepa okkur
Djöfulli góð saga finnst ykkur ekkki
Já en ég er að fara að halda áfram að deyja úr hálsbólgu og beinverkjum, GAMAN

Já þetta er flugan og hún var akkurat í þessari stærð!!!
08maí
Hey var að setja inn myndir frá síðan um helgina á Pál Óskari
Allir að skoða
07maí
Jæja, ætli það sé ekki best að segja aðeins frá Helginni hérna, þetta var seinasta djammhelgin sem Laugafólk tekur saman núna, margir að útskrifast og aðrir að hætta
Og ég ætla að segja frá helginni í smáatriðum:
Föstudagurinn 5. Maí
~ Afmælisdagur Tinnu ~
Svo að ferðinni var heitið á Húsavík og fór ég með Önnu, Ástu, Eyþóri og Valda. Maður hefði nú alveg getað sleppt þessu kvöldi sko, Þetta var bara rugl,Það voru ekki allir til í að djamma á þessu kvöldi, en að sjálfsögðu var ég til í það
allir að miskilja allt og með eikkað drama út af engu, Bína og Dabbi og fullt af liði kom á Húsavík en fékk svo ekki einu sinni að gista á Laugum
Og kvöldið endaði með því að allir komu heim á Laugar aftur í fílu eða ekki fílu
Laugardagurinn 6. Maí
~ Afmælisdagur Palla ~
Anna vakti mig í hádegismat og eftir hann fór ég í sund með Tinnu, Nínu og Ellu. Það komu geðveikt margir í sund enda var frábært veður og margir fengu smá brúnku
Svo var farið upp á fjall með Tinnu og Nínu og Sigrúnu og við brunuðum inn á Húsavík og keyptum grillmat. Svo var grillað upp á Fjalli og eftir það var skellt sér á Pál Óskar
Kallinn var frábær eins og alltaf og var húsið pakkfullt. Maður sturtaði náttlega í sig en átti bara pening fyrir 2 bjórum þannig að maður var nú ekkert á rassgatinu sko
En fínt kvöld, það voru allir þarna, allir fra Laugum, margir frá Þórshöfn og Kópaskeri en það voru nú bara 3 Raufsarar sem er Skömm
Ég fór með Kristínu, Jakob, TinnuRún og Önnu í bíl ég keyrði áfram leiðina frá Fosshól til Ak en Kristín tilbaka. En kvöldið endaði með því að við enduðum bara 3 í bílnum, Ég, Kristín og Jakob
heheh já þa var mikið kisst og Sumir náðu sér í hehehe
Nefni engin nöfn hérna, en allavegna gott kvöld!!
Sunnudagurinn 7. Maí
Við komum heim um hálf 6 um morguninn og þá fór ég að horfa á Sweet homa Alabama, og sofnaði yfir henni. Vaknaði kl. hálf 4 búin að sofa vel og lengi
og ég svefnfíkillin sjálfur hef náttlega ekkert á móti því
Fór svo í þetta grilldæmi kl. 5 og fékk 1/4 af lærisneið, því kjötið var náttlega af skornum skammti eins og virðist fara að gerast oftar að maður fær stundum ekki alltaf mat
En þetta var samt bara fínt sko
Jæja bara fínasta helgi hérna á ferð, en ég þarf að fara að taka til og læra og fara í sturtu
Skemmtó, en ég bið að heilsa í bili og allir að kvitta
Love...Sædís
